Heim
Innkaupakarfa
 Um fjallakofann 
 Fréttir 
 Afgreiðslutímar 
 

08.01.2009
Til hamingju Jökull Bergmann

Fjallakofa klifrarinn og UIAGM-IFMGA Fjallaleiðsögumaðurinn Jökull Bergmann hefur sett í loftið nýja heimasíðu fyrir fjallaleiðsögufyrirtækið sitt Bergmenn - Fagmenn í fjallaleiðsögn www.bergmenn.com . Þarna er samankomið eitt besta safn ljósmynda og efnis um fjallamennsku hverskonar á Íslandi en þó með sérstakri áherslu á fjallaskíðaferðir, þyrluskíðun, ísklifur og Alpaferðir. Jökull býður uppá magnað úrval ferða á Íslandi sem og sérsniðnar Alpa ferðir fyrir Íslendinga, en hann er eini Íslendingurinn sem hefur starfsréttindi í Evrópsku Ölpunum. Jökull náði þeim merka áfanga á þessu ári að verða fyrsti Íslendingurinn til að útskrifast með hina gríðarlega virtu alþjóðlegu UIAGM-IFMGA Fjallaleiðsögumanna gráðu. Jökull hefur starfað með Fjallakofanum  við prófun búnaðar og er styrktur af Fjallakofanum, Scarpa og Black Diamond. Jökull treystir á græjur úr Fjallakofanum í sínu erfiða starfi sem fjallaleiðsögumaður. Fjallakofinn  óskar Jökli til hamingju með gráðuna og glæsilega heimasíðu sem á vafalaust eftir að trekkja að mikin fjölda fjallamanna víðsvegar að úr heiminum

Bookmark and Share
     Annað
     Áburður og þvottaefni
     Bakpokar
     Búnaðarleiga
     Dýnur
     Fatnaður
     Fjallaskíðabúnaður
     Gleraugu
     Göngustafir
     Hanskar
     Hálkugormar
     Hitabrúsar
     Höfuðljós
     Klifurbúnaður
     Legghlífar
     Leiðsögutæki
     Matur
     Mataráhöld
     Pottar og prímusar
     Sjúkrabúnaður
     Skíða- og Plastskór
     Skór
     Smávara
     Snjóflóðabúnaður
     Sokkar
     Svefnpokar
     Tjöld
     Tilboð

nafn 
netfang 
skrá