Stoðtæki / Fjallakofinn hefur tekið við umboði fyrir Yaktrax hálkugormana sem margur útivistarmaðurinn þekkir af góðri raun, en þeir sem reynt hafa fullyrða að á þeim megi hlaupa á rennblautum ís án þess að eiga á hættu að renna til og detta. Þeir eru því afar góður kostur fyrir alla þá sem eru á ferðinni útivið þegar hálka og snjór gerir erfiðara um vik að ná góðri fótfestu. Skokkarar, bréfberar, hundaeigendur, stafgönguiðkendur, eldri borgarar á heilsubótargöngu, þannig mætti lengi telja alla þá sem geta nýtt sér kosti þess að hafa Yaktrax á fótum.
Walker kostar kr 3.995,- / Pro 5.495,-

|