Við kynnum með stolti nýja og glæsilega netverslun sem leysir af hólmi 11 ára gamla vefsíðu Fjallakofans. Með þessari uppfærslu er loksins kominn inn sá möguleiki að kaupa vörur á síðunni og borga með korti eða millifærslu eins og á alvöru netverslunum.

Síðan er í stöðugri þróun og sífellt bætast við fleiri og fleiri vörur ásamt því að upplýsingar um vörurnar verða betri. Við þiggjum allar ábendingar um það sem betur má fara og bendum á "ábendingaform" sem hægt er að senda í gegnum hér efst á síðunni.