Við leitum að verslunarstjóra í verslun okkar að Laugavegi 11. 

Við leitum að jákvæðum, drífandi, skipulögðum og metnaðarfullum einstaklingi til að stýra verslun Fjallakofans á Laugavegi 11. 
Verkefni verslunarstjóra eru: dagleg stjórnun verslunar,skipulagning,pantanir, framsetning vöru, sala til viðskiptavina, tímaskráningar og uppgjör.

Reynsla af verslunarstörfum, færni í mannlegum samskiptum, og góð tungumálakunnátta er nauðsynleg.

Um er að ræða 100% framtíðarstarf.

Umsóknarfrestur er til og með 7.ágúst. 

Áhugasamir eru beðnir um að senda umsókn og ferilskrá á netfangið: fjallakofinn@fjallakofinn.is