Black Diamond Guide BT snjóflóðaýlir

Special Price 69.995 kr.

Black Diamond Guide BT snjóflóðaýlir

Vörunúmer: BD1510010000ALL1
Netverslun
Hallarmúla

Er varan uppseld?

Senda fyrirspurn um vöru

Black Diamond GUIDE BT snjóflóðaýlir. Vandaður snjóflóðaýlir sem margfaldar líkur á því að finnast ef lent er í snjóflóði. Mikilvægur öryggisbúnaðir til fjalla. Hægt að tengja við síma með Bluetooth og uppfæra með PIEPS appi.

ÍTARLEG SJÁLFVIRK YFIRFERÐ
Fer yfir allan hugbúnað og vélbúnað ásamt því að sýna númer hugbúnaðarútgáfunnar.

SKÝR SKJÁR
Við öll birtuskilyrði

TITRINGUR
Ýlirinn titrar þegar hann nemur fyrsta merki. Gefur leitarmanni tækifæri til að einbeita sér því að leita á yfirborðinu við upphafsleit.

FULLKOMIN MERKING Á ÝLI
Þökk sé öflugri og nákvæmri meðhöndlun á merkjum.

PIEPS TRUFLUNARVÖRN
Allri utanaðkomandi truflun er eytt eða lágmörkuð:
Sjálfvirk skipting loftneta í sendingarham: Ef sendiloftnet verður fyrir áhrifum utanaðkomandi truflunar þá skiptir ýlirinn sjálfkrafa í það loftnet sem verður fyrir minnstri truflun.
Staðfesting á merki - í leitarham: Ýlirinn tekur bara viðurkennd 457kHz merki.

iPROBE STUÐNINGUR
Með Pieps iProbe snjall snjóflóðastöng er hægt að setja ýlinn tímabundið í pásu frá sendingu þ.a. í leit af mörgum ýlum geta allir aðrir haldið áfram að leita að næsta ýli án þess að koma að þessum ýli og merkja.

SJÁLFVIRK SKIPTING FRÁ LEIT Í SENDINGU
Ýlirinn skiptir sjálfkrafa frá leit yfir í sendingu þegar ýlir er hreyfingalaus í ákveðinn tíma ef ske kynni að leitarmaður lendir í snjóflóði.

HÓP ATHUGUN
Hægt er að athuga sendingu og leit á ýlum ferðafélaganna. PIEPS mælir með að þetta sé gert fyrir hverja ferð.

SKÖNNUN
Hægt er að láta ýlinn skanna leitarsvæðið til að fá yfirlit yfir alla ýla á sendingu innan leitarsviðsins.

VAL Á FÓRNARLAMBI
Ýlirinn velur sjálfkrafa 3 ýla sem eru næst honum. Hægt er að velja hvaða ýli maður fer að leita af (t.d. ef margir eru að leita)

ANALOG HAMUR
Hægt að skipta yfir í analog ham fyrir sérstakar leitaraðgerðir og til kennslu.

TX600 STUÐNINGUR
PIEPS TX600 er "mini"-ýlir fyrir hunda og útbúnað. Ýlirinn sendir fyrir utan EN300718 tíðnina og er hægt að leita eftir með PRO BT ýlinum.

HALLAMÆLIR
Með innbyggðum hallamæli er hægt að mæla halla brekkunnar.

BURÐARÓL FYLGIR
Slitþolin og létt burðartaska
Neoprene poki með mjúkri axlaról
Quick-Pull búnaður sem tryggir snöggt aðgengi að búnaðinum

HELSTU EIGINLEIKAR

  • Hámarks drægni 60m
  • Breidd leitargeisla 60m
  • Ummál mm (l x b x h): 118 x 76 x 29)
  • Þyngd með batteríum: 220 gr
  • Aflgjafi: 3 batterí (AAA)
  • Líftími raflöðu 300 klst
  • Senditíðni (kHz): 457
  • Senditíðni (kHz) samkvæmt EN30007 18: 457
  • Hitaþol -20°C til +45°C