Pieps PRO BT snjóflóðaýlir

Special Price 69.995 kr.

Pieps PRO BT AVALANCHE BEACON

Vörunúmer: PP1100620000ALL1
Netverslun
Hallarmúla

Er varan uppseld?

Senda fyrirspurn um vöru

Pieps Pro BT snjóflóðaýlir. Vandaðasti snjóflóðaýlirinn frá Pieps, sem margfaldar líkur á því að finnast ef lent er í snjóflóði. Mikilvægur öryggisbúnaðir til fjalla. Hægt að tengja við síma með Bluetooth og uppfæra í með PIEPS appi.

YFIRSÝN
SCAN virkni sem sýnir alla aðila sem skanninn finnur á völdu afmörkuðu svæði.

VAL
Hægt að velja einn fundinn aðila úr fjölda til að njörva niður leitina betur.

ÍTARLEG SJÁLFVIRK YFIRFERÐ
Fer yfir allan hugbúnað og vélbúnað ásamt því að sýna númer hugbúnaðarútgáfunnar.

SKÝR SKJÁR
Við öll birtuskilyrði

FULLKOMIN MERKING Á ÝLI
Þökk sé öflugri og nákvæmri meðhöndlun á merkjum.

PIEPS TRUFLUNARVÖRN
Allri utanaðkomandi truflun er eytt eða lágmörkuð:
Sjálfvirk skipting loftneta í sendingarham: Ef sendiloftnet verður fyrir áhrifum utanaðkomandi truflunar þá skiptir ýlirinn sjálfkrafa í það loftnet sem verður fyrir minnstri truflun.
Staðfesting á merki - í leitarham: Ýlirinn tekur bara viðurkennd 457kHz merki.

iPROBE STUÐNINGUR
Með Pieps iProbe snjall snjóflóðastöng er hægt að setja ýlinn tímabundið í pásu frá sendingu þ.a. í leit af mörgum ýlum geta allir aðrir haldið áfram að leita að næsta ýli án þess að koma að þessum ýli og merkja.

SJÁLFVIRK SKIPTING FRÁ LEIT Í SENDINGU
Ýlirinn skiptir sjálfkrafa frá leit yfir í sendingu þegar ýlir er hreyfingalaus í ákveðinn tíma ef ske kynni að leitarmaður lendir í snjóflóði.

HÓP ATHUGUN
Hægt er að athuga sendingu og leit á ýlum ferðafélaganna. PIEPS mælir með að þetta sé gert fyrir hverja ferð.

BURÐARÓL FYLGIR
Slitþolin og létt burðartaska
Neoprene poki með mjúkri axlaról
Quick-Pull búnaður sem tryggir snöggt aðgengi að búnaðinum

HELSTU EIGINLEIKAR

  • Hámarks drægni 60m
  • Breidd leitargeisla 60m
  • Ummál mm (l x b x h): 118 x 76 x 29)
  • Þyngd með batteríum: 220 gr
  • Aflgjafi: 3 batterí (AAA)
  • Líftími raflöðu 600 klst
  • Senditíðni (kHz): 457
  • Senditíðni (kHz) samkvæmt EN30007 18: 457
  • Hitaþol -20°C til +45°C