Rocky Mountain Solo 50 gravelhjól

Special Price 299.994 kr.

Rocky Mountain Solo 50 Gravel bike

Vörunúmer:
stærð
Veldu eiginleika til að sjá stöðu
Netverslun
Hallarmúla

Er varan uppseld?

Senda fyrirspurn um vöru

Rocky Mountain Solo eru einstaklega fjölhæf gravel – hjól. Ef þú vilt láta þér líða vel á malbikinu, fara yfir á malarvegi og út á slóðana í sömu ferðinni þarftu ekki að leita lengra eftir rétta hjólinu. Það hentar líka frábærlega sem samgönguhjól og enn betur til lengri ferða. Á stellinu eru allar nauðsynlegar festingar fyrir hjólatöskur, bretti, bögglabera og aðra fylgihluti sem hugsast getur á hjól af þessu tagi. 

Solo Gravelhjól bjóða upp á þann möguleika að skipta út gjörðunum fyrir 650b gjarðir og þar með breiðari dekk. Það eykur fjölhæfni hjólsins enn meira.

Helstu eiginleikar:

  • Stell Rocky Mountain Butted 6061 SL Series Alloy. Ekki gert ráð fyrir framskipti. BB386 EVO. 12x142mm Öxull. Flat Mount Disc. Jafnt fyrir 700x40c og 650bx2.2 gjarðir/dekk. Fyrir dropper sætispípu, festingar fyrir töskur, bretti og bögglabera
  • Gaffall: Rocky Mountain Carbon Gravel. 15mm Axle. Cargo 3 Pack & Fender Mounts
  • Stýrislegur: Rocky Mountain | Sealed 36°x45° Bearings | 30.2mm x 41mm x 7.1mm Upper | 40mm x 51.8mm x 7.5mm Lower | 1.5" Crown Race
  • Stammi: Rocky Mountain 31.8 XC | 7° Rise | XS = 60mm |SM = 70mm | MD = 80mm | LG= 90mm |XL = 100mm
  • Stýri: Rocky Mountain Flare Drop
  • Grip: Rocky Mountain Gel Bar Tape
  • Bremsur: Sram Rival vökvabremsur / 160mm Sram centerline diskar
  • Skiptir og handföng: Sram Rival 1x12 gírar
  • Sveifasett: Sram Rival 1 (DUB) Wide | 42T | Sveifalengdir: XS-SM = 170mm | MD = 172.5mm | LG-XL = 175mm
  • Kassetta: Sram XPLR XG-1251 10-44T
  • Keðja: Sram Rival 12 gíra
  • Gjarðir: Rocky Mountain með lokuðum legum 15mm / 142mm nöf / WTB ST i23 TCS Tubeless | 28H | Tubeless Ready - Tape | 2.0 stálteinar
  • Dekk: Framan og aftan: WTB Venture TCS Light Fast Rolling 700 x 40c| Tubeless Ready (ventlar fylgja) 
  • Sætispípa: Rocky Mountain 27.2mm (hægt að skipta út fyrir dropper sætispípu)
  • Hnakkur: WTB Silverado Race 142mm

Þyngd: - kg

Kanadísku Rocky Mountain fjallahjólin skipa stóran sess í sögu fjallahjólreiða. Þau hafa margsannað sig sem ein vönduðustu og öflugustu reiðhjól í heimi og hafa unnið til fjölda verðlauna, bæði í keppnum og í samanburðarumfjöllunum erlendra hjólatímarita.

Komdu og prófaðu og þá skilurðu hvað við erum að tala um!

Viðhald fjallahjóla Fjallakofans, líkt og allar almennar hjóla- og rafmagnshjólaviðgerðir fara fram á hjólaverkstæði í húsnæði verslunarinnar í Hallarmúla 2. Reiðhjólaverkstæði verslunarinnar er búið öllum nauðsynlegum búnaði og við tökum vel á móti öllum viðskiptavinum. Reiðhjólaverslun Fjallakofans er á neðri hæð Hallarmúla 2.