Kästle XA10 Classic Skinnskíðin fyrirgefa mikið og henta því vel fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu skref í íþróttinni en vilja góðan útbúnað. Skíðin eru örlítið breiðari en hefðbundin keppnisskíði og láta því vel af stjórn og veita meira öryggi fyrir skíðamanninn.
Við mælum sérstaklega með skíðunum fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu skref í sportinu, og stefnir jafnvel á gönguskíðanámskeið.
Öll skíðin frá Kästle koma með NNN plötu.
Þyngdartafla frá framleiðanda:
Lengd 179 cm (35-48 kg), 186 cm (45-68 kg), 193 cm (50-81 kg), 200 (70-96 kg), cm 207 cm (75-96+ kg)
Við kaup á gönguskíðaútbúnaði er mælt með því að gefa upp hæð, þyngd og getustig svo hægt sé að velja útbúnað við hæfi.