Rocky Mountain Solo Carbon 70 eru einstaklega fjölhæf gravel – hjól. Ef þú vilt láta þér líða vel á malbikinu, fara yfir á malarvegi og út á slóðana í sömu ferðinni þarftu ekki að leita lengra eftir rétta hjólinu. Það hentar líka frábærlega sem samgönguhjól og enn betur til lengri ferða. Á stellinu eru allar nauðsynlegar festingar fyrir hjólatöskur, bretti, bögglabera og aðra fylgihluti sem hugsast getur á hjól af þessu tagi.
Solo Gravelhjól bjóða upp á þann möguleika að skipta út gjörðunum fyrir 650b gjarðir og þar með breiðari dekk. Það eykur fjölhæfni hjólsins enn meira.
Helstu eiginleikar:
- Stell Rocky Mountain Smoothwall Carbon. BB386. Ekki gert ráð fyrir framskipti. Jafnt fyrir 700x40c og 650bx2.2 gjarðir/dekk. Hægt að setja dropper sætispípu, festingar fyrir töskur, bretti og bögglabera. Sram UDH samhæft.
- Gaffall: Rocky Mountain Carbon Gravel. Carbon stýring. 110 x 12mm Öxull. 3 tösku & skerma festingar
- Stýrislegur: FSA Orbit NO.57E | Sealed 36°x45° Bearings | 30.2mm x 41mm x 7.1mm Upper | 40mm x 51.8mm x 7.5mm Lower | 1.5″ Crown Race
- Stammi: Rocky Mountain 31.8 XC | 7° Rise | XS = 60mm |SM = 70mm | MD = 80mm | LG= 90mm |XL = 100mm
- Stýri: Easton EA70 AX | 80mm Reach | 120mm Drop | Flare 16° | Width: 420mm XS | 440mm SM-MD | 460mm LG-XL
- Grip: Rocky Mountain Gel Bar Tape
- Bremsur: Sram Rival
- Skiptir: Sram Rival XPLR AXS 1×12 gírar
- Sveifasett: Sram Rival 1 Wide | 42T | DUB Spindle | Sveifalengdir: XS-SM = 170mm | MD = 172.5mm | LG-XL = 175mm
- Kassetta: Sram XPLR XG-1251 10-44T
- Keðja: Sram Rival 12 gíra
- Gjarðir: Easton EA70 AX.
- Dekk: Framan og aftan: WTB Venture TCS Light Fast Rolling 700 x 40c
- Sætispípa: Rocky Mountain 27.2mm (hægt að skipta út fyrir dropper sætispípu)
- Hnakkur: WTB Silverado Race 142mm
Þyngd: 9 kg
Kanadísku Rocky Mountain fjallahjólin skipa stóran sess í sögu fjallahjólreiða. Þau hafa margsannað sig sem ein vönduðustu og öflugustu reiðhjól í heimi og hafa unnið til fjölda verðlauna, bæði í keppnum og í samanburðarumfjöllunum erlendra hjólatímarita.
Komdu og prófaðu og þá skilurðu hvað við erum að tala um!
Viðhald fjallahjóla Fjallakofans, líkt og allar almennar hjóla- og rafmagnshjólaviðgerðir fara fram á hjólaverkstæði í húsnæði verslunarinnar í Hallarmúla 2. Reiðhjólaverkstæði verslunarinnar er búið öllum nauðsynlegum búnaði og við tökum vel á móti öllum viðskiptavinum. Reiðhjólaverslun Fjallakofans er á neðri hæð Hallarmúla 2.