Arktis Windstopper Ousland derhúfa

Vörumerki: Nørrona

Verð: 19.196 kr.

Stærðir: XL, L

arktis Windstopper Ousland Edition Cap

Arktis Windstopper Ousland Edition derhúfa. Einstaklega hlý og vindheftandi húfa fyrir kröfuharðar aðstæður. Þessi var hönnuð í samstarfi við heimskautafaran Børge Ousland, þar sem kuldi og erfiðar aðstæður var viðfangsefnið. Nýtist í alla krefjandi fjallamennsku, fjallaskíði og allmennt vetrarsport.

Húfan okkar sem veitir bestu vörnina í frosti. Þessi vandaða leiðangurshúfa hylur höfuðið algjörlega og verndar þig gegn opum og veðri sem annars gætu valdið kuldablettum eða kali. Tveir hliðarflipar með Velcro®-festingum ti að herða húfuna að andlitinu og loka fyrir vindinn. Ullarflipi að framan sem hægt er að draga niður í miklum kulda til að auka vörn fyrir nef og efri hluta höku sem geymd er aftan á húfunni. Mjúkt skyggni sem hægt er að draga niður í björtu og sólríku veðri og límdir saumar.

Ytra efnið er Gore-Tex Infinium-flís, sem inniheldur 100% vindhelda himnu með framúrskarandi öndunareiginleika. Að innan er fóður úr Polartec® Thermal Pro®, sem býður upp á frábært hlutfall varma og þyngdar, auk þess að þorna hratt.