Hi-Loft Nano Puff Hoody, dömu
Vörumerki: Patagonia
Verð: 49.995 kr.
Stærðir: L, S, M, XL
Hi-Loft Nano Puff Hoody, dömu
Patagonia Hi-Loft Nano Puff® einangrunarjakki með hettu er hlýr, léttur og vindheldur jakki með vatnsfráhrindandi áferð. PrimaLoft® Silver Eco einangrun úr 100% endurunnu pólýesteri veitir góða einangrun og heldur hita þótt hún blotni. Slitsterk hönnun og góð hreyfigeta gera jakkann tilvalinn í útivist og ferðalög í köldu veðri.
Helstu eiginleikar:
- Hlý PrimaLoft® Silver Eco einangrun úr 100% endurunnu pólýesteri
- Vindheldur og vatnsfráhrindandi
- Mismikil einangrun eftir svæðum fyrir aukin þægindi og hreyfigetu
- Stillanleg hetta sem rúmar hjálm
- Rennilás að framan með vindvörn og hökuhlíf
- Brjóstvasi með rennilás og tveir handhitunarvasar
- Styrking á öxlum og ytri ermum fyrir aukið slitþol
- Stillanlegur faldur og teygjanlegar ermabrúnir
- Framleiddur samkvæmt Fair Trade Certified™-stöðlum
Efni: Ytra byrði og fóður úr 100% endurunnu pólýesteri. PrimaLoft® Silver Eco einangrun úr 100% endurunnu pólýesteri.
Þyngd: 697 g