Blaze 106 fjallaskíði

Vörumerki: Völkl

Verð: 129.995 kr.

Stærðir: 165, 172

Völkl Blaze 106 fjallaskíði. Lipur fjallaskíði sem nýtast líka í troðnum brautum. ATH! Vegna öryggistaðla er nauðsynlegt að setja inn aldur, hæð, þyngd og getustig (byrjandi/vanur) í "Skýring með pöntun" þegar pantað er. Ef það eru engir skór pantaðir með, þá þarf að setja líka mm lengd á skósóla á þeim skíðaskóm sem stendur til að nota. Þetta er mikilvægt til að stilla bindingar rétt svo þær séu öruggar!

Völkl Blaze 106 fjallaskíði. Eru létt & lipur fjallaskíði sem eru hönnuð með hreyfanleika í huga. Þunna Titanium platan undir bindingunni flytur orkuna á einfaldan hátt út í skiðin, sem skapar þannig mjúka hreyfingu í beygjum. Skíðin nýtast því líka vel í hörðu og troðnu færi, jafn vel og í púðrinu.

Helstu eiginleikar:

  1. Snið: Tip 143mm, miðja 106mm, tail 128mm
  2. Þyngd: 1600 g (158cm) - 1875 g (186 cm)
  3. Rocker: Tip & Tail Kjarni: Green Core
  4. Botn: P-Tex 2100
  5. Skinnfestingar: Já
  6. Æskilegar bindingar (fylgja ekki): DUKE PT 13 125mm, GRIFFON 13 ID 110mm, KINGPIN MWerks 12; 100 - 125 mm