Verkstæði


Vel búið hjóla- og skíðaverkstæði
Við erum stolt af því að geta boðið landsmönnum upp á vel útbúið verkstæði fyrir skíði og hjól í verslun okkar að Hallarmúla 2. Á verkstæðunum eru sérþjálfaðir starfsmenn sem hafa starfað við viðgerðir og þjónustu í mörg ár. Öll vörumerki eru velkomin til viðgerðar hjá okkur!

SKÍÐAVERKSTÆÐI
Á skíðaverkstæðinu eru vandaðar vélar til að vaxa skíði og bretti, auk kantskerpinga. Við bjóðum einnig uppá að festa og stilla til bindingar, sem er þá metið hverju sinni. Endilega komið við hjá okkur svo við getum skoðað hvað er mögulegt að gera.
Ekki er þörf á að panta tíma, bara að koma með búnaðinn til okkar.
Við gefum okkur allt að 2 virka daga fyrir stærri verkefni, en það fer allt eftir verkefnastöðu hverju sinni hversu fljótt við getum afgreitt búnaðinn.
Á VETRARÚTSÖLUNNI 23.2 – 5. 3 MÁ BÚAST VIÐ LENGRI AFHENDINGARTÍMA.


HJÓLAVERKSTÆÐI
Fjallakofinn hefur komið sér upp fullkominni aðstöðu til viðgerða og viðhalds á reiðhjólum. Við þjónustum allar gerðir reiðhjóla og markmið þjónustunnar er ávallt að skila hjólinu til þín í sínu allra besta ástandi!
TÍMAPANTANIR

Nauðsynlegt er að panta þarf tíma fyrirfram á hjol@fjallakofinn.is, eða í síma 510-9505. Það er einnig hægt að panta í genum Noona með því að smella á myndina hér til hliðar. Tilkynna þarf komu í síma 510-9505 eða hringja bjöllu við verkstæðisinngang að baki verslunar Fjallakofans, Hallarmúla 2 við komu. Tímagjald hjólaverkstæðis Fjallakofans er kr.11.995. Þrifagjald er kr. 5.995. Ath! Öll hjól sem við fáum til okkar í þjónustu eru þrifin, séu þau ekki hrein við afhendingu. Rukkað er fyrir öll þrif skv. verðskrá, eða í tímagjaldi séu þau í lágmarki.
Crop Image
Þessi vefsíða notar vafrakökur (e. Cookies) til að bæta upplifun notenda og greina umferð um vefinn. Með því að halda áfram samþykkir þú notkun okkar á vafrakökum.