Scarpa Spin Ultra hlaupaskór, dömu
Special Price 28.995 kr.
Scarpa Spin Ultra Wmn Shark-M Gre
Er varan uppseld?
Senda fyrirspurn um vöruScarpa Spin Ultra eru verðlaunaskór sem hannaðir eru fyrir lengri utanvegahlaup.
Efri hlutinn er úr léttu möskvaefni, ásamt hitaðri TPU filmu, sem aðlagast að fætinum eins og sokkur (Sock-Fit LW construction system). Þetta kemur í veg fyrir álagsfleti og tryggir hámarks þægindi og að skórnir passi rétt. Tungan er létt og með góðri öndun, sérstakir HLP vasar fyrir reimarnar. Innbyggðar reimafestingar til að styðja við efri hlutann.
Velox Max sóli, ásamt Vibram Megagrip og Litebase samsetningu, gefur mjög gott grip.
Miðsólinn er með samþjöppuðu EVA inleggi sem gefur góða höggdeyfingu, ásamt TPU filmu sem gefur betri spyrnu.
Þyngd: 250g (stakur skór, stærð 38)