Gregory Border Traveler 30 bakpoki

Special Price 27.995 kr.

Gregory BORDER TRAVELER 30 

Vörunúmer: 139312/2426
Netverslun
Hallarmúla

Er varan uppseld?

Senda fyrirspurn um vöru

Gregory BORDER TRAVELER 30 .  Ferðabakpoki sem er tilvalinn sem handfarangur í flugi. Hólf fyrir tölvuna, fötin, brúsann og fyrir þetta helsta sem þarf í ferðina. Einnig er sérhólf ActiveShield sem heldur óhreinum eða blautum fötum og búnaði aðskildum til að vernda gegn raka, lykt og óhreinindum. Gerður úr 100% endurunnu næloni með PFC -free DWR filmu.

Helstu eiginleikar:

  • ActiveShield hólf með Polygiene StaysFresh tækni fyrir óhrein föt og skó
  • Opnanleg eins og ferðataska, er með nokkrum hólfum
  • DWR (durable water repellent) meðhöndlun, PFC-free
  • Stórt bólstrað hólf næst baki fyrir 15,6" fartölvur
  • Smáhólf að ofan með rennilás
  • Stórt hólf að framan með rennilás og innri möskva vasa með lyklakippu bandi
  • Rennilása læsing á 3 hólfum ( smeygt undir flipa)
  • Vel loftandi möskvar á baki
  • Hliðar möskvavasi fyrir brúsa sem hægt er að loka með rennilás
  • Axlaról með mjúkum púðum
  • BLUESIGN® samþykktar smellur

Efni: PVC -free filmað með 210D High Density 66 Nylon & 100% endurunnið 450D Plyester með PFC-free DWR filmu.

Þyngd: 1.13 kg

Rúmmál: 30 L

Stærð: 20 x  55 x 39 cm