Black Diamond hefur tilkynnt valfrjálsa innköllun á karabínum (sem framleiddar voru frá des 2014 til jan 2016 og borðum (slingum). 

Karabínur

Möguleiki gæti verið á að karabínan virki ekki sem skyldi. Innköllunin tekur til karabina með framleiðslunúmer á milli 4350 og 6018.

Allar nánari upplýsingar um innköllunina er að finna á heimasíðu Black Diamond

 

Borðar / slingar

Innköllun á borðum/slingum gildir um þá borða sem innihalda framleiðslunúmer 2014 eða 2015 sem er skráð á miðann sem er áfastur borðanum.

Allar nánari upplýsingar um innköllunina er að finna á heimasíðu Black Diamond.

 

Við hvetjum alla til að yfirfara sinn búnað og fylgja þeim leiðbeiningum sem eru á heimasíðu Black Diamond með framhaldið.