Eldgosið við Litla-Hrút
Nú er þriðja gosið á þremur árum hafið og alltaf þykir okkar jafn spennandi að sjá og upplifa eldgos, en við í FJALLAKOFANUM hvetjum alla sem hafa hug á að fara gangandi að gosinu að huga vel að sínum útbúnaði, veðurspá, og ekki síst tilkynningum frá Almannavörnum. Ef þið leggið í gönguna sem er hátt í 20 km. fram og tilbaka.
Þá er nauðsynlegt að vera með rétta útbúnaðinn og ekki síður í góðu líkamlegu formi. Góða ferð, og umfram allt farið varlega.
Hér er listi yfir þann búnað sem nauðsynlegur er til að fara í langa göngu í erfiðu landslagi þar sem allra veðra er vonjafnvel um hásumar:
Smellið á tenglana til að skoða nánar vörurnar á listanum:
Göngufatnaður:
- Góðir gönguskór - HERRA og DÖMU
- Ullar göngusokkar - HERRA og DÖMU
- Peysa úr ull eða flís - HERRA, FLÍSFATNAÐUR - HERRA, ULLARFATNAÐUR og DÖMU, FLÍSFATNAÐUR - DÖMU, ULLARFATNAÐUR
- Göngubuxur - HERRA og DÖMU
- Húfa og vettlingar - HÚFUR og HANSKAR eða LÚFFUR
- Úlpa – fíber eða dún - HERRA og DÖMU
- Vind- og vatnsheldur hlífðarfatnaður - HERRA JAKKAR - HERRA BUXUR og DÖMU JAKKAR - DÖMU BUXUR
- Höfuðljós og auka rafhlaða
- Göngustafir
- Sólgleraugu
- Vatnsbrúsi
- Hitabrúsi
- Sjúkrataska
- Neyðarskýli/álteppi
- Flauta
- Pissutrekt
- Göngunasl
- Nesti
- Sími og hleðslubanki
- GPS tæki eða gps í síma
ENGIN BÓMULLARFÖT!
Góða og örugga ferð